Friðrik Friðriksson

Fjármálastjóri

Tengiliðsupplýsingar: fridrik.fridriksson@nyskopun.is | Sími: 896-7350

Friðrik hefur fjölþættan starfsferil og lengst af starfað við framkvæmdastjórn í fyrirtækjum, m.a. IBM á Íslandi, Skrifstofuvélum Sund og Skjánum ehf. Friðrik hefur einnig unnið við endurskipulagningu fyrirtækja, samruna og sölu þeirra ásamt almennri rekstrarráðgjöf. Þá hefur Friðrik einnig setið í ýmsum stjórnum, meðal annars sem stjórnarformaður CCP hf. og stjórnarformaður MATÍS ohf. Hann var auk þess stjórnarformaður AVS sjóðsins. Friðrik skrifaði úttektarskýrslu um Vaðlaheiðargöngin fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið og er stjórnarformaður Vaðlaheiðargangna hf.

Friðrik hefur lokið viðskiptafræðiprófi Cand Oecon frá Háskóla Íslands, MA prófi í hagfræði frá Virgina Tech og MBA prófi frá sama háskóla.

Friðrik er stjórnarformaður Mentis Cura AS. og  Nordic Visual ehf. Hann situr auk þess í stjórnum MedEye, PayAnalytics ehf., Ankeri Solutions ehf., Spectaflow ehf. og Expeda ehf. Ásamt því er hann tengiliður sjóðsins við Klappir Grænar Lausnir hf., CRI hf., Auði 1 og Brú II.

Hóf störf hjá Nýsköpunarsjóði
2017
Fyrri störf
IBM
Síminn
Skjárinn
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.