Íslandsstofa býður til kynningarfundar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á sviði grænna lausna sem hyggja á sókn á alþjóðlega markaði. Viðburðurinn fer fram í Norræna húsinu þriðjudaginn 8. apríl kl. 9.00 og er haldinn í samstarfi við Nefco, Nopef og Grænvang.
DAGSKRÁ
• Kaffi og léttur morgunverður frá kl. 8:30
• Nopef fjármögnun til undirbúnings alþjóðavæðingar, Vanessa Salmela, Investment Officer, Nefco
• Nefco lán til vaxtar á erlendum mörkuðum, Þórhallur Þorsteinsson, Vice President, Nefco
• Reynslusögur frá viðskiptavinum Nefco og Nopef
Nánari upplýsingar veitir Ágúst Sigurðarson, agust@islandsstofa.is