21
.
February
2025

Sagareg vinningshafi Gulleggsins 2025 og Meniga fær heiðursverðlaun

Föstudaginn 14. febrúar s.l. fór fram lokakeppni Gulleggsins 2025, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, þar sem nýstárlegar viðskiptahugmyndir glöddu gesti í sal og í beinni útsendingu á visir.is. Keppnin var haldin í hátíðarsal Grósku þar sem stemningin var rafmögnuð og keppendur heilluðu áhorfendur og dómara upp úr skónum.

Vinningshafar Gulleggsins 2025​

  • 1.sæti – Sagareg: 2.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum. Sigurvegarann kynnti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
    • Sagareg einfaldar gerð umsóknarskjala (dossiers) um markaðsleyfi lyfja með gervigreind og sérhæfðum hugbúnaði. Lausnin sjálfvirknivæðir textaskrif, töflugerð og gæðaeftirlit, sem tryggir hraðari og áreiðanlegri umsóknir til heilbrigðisyfirvalda.
  • 2.sæti – Hvað nú?: 1.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum, veitt af Söru Pálsdóttur, framkvæmdastjóra samskipta og menningar hjá bankanum.
    • Hvað nú? veitir syrgjendum heildstæða þjónustu sem einfaldar ferlið í kjölfar andláts ástvina. Þjónustan styður syrgjendur á erfiðum tíma, eykur skilvirkni og hjálpar þeim að komast fyrr aftur út í samfélagið. Nafnið vísar í algengu spurninguna sem vaknar við slíkar aðstæður: „Hvað nú?“
    • Þau hlutu einnig sérstök verðlaun frá KPMG: 20 klukkustunda ráðgjöf, kynnt af Önnu Guðrúnu Gunnlaugsdóttur.
  • 3.sæti – Samvís
    • Samvís þróar nýja kynslóð leitarvéla fyrir vísindamenn og námsmenn með gervigreindartækni. Lausnin auðveldar aðgengi að rannsóknum og skapar brú milli vísinda og samfélags. Samvís var einnig valið sem háskólateymið sem fer fyrir Íslands hönd til Aþenu á alþjóðlega frumkvöðlakeppni í boði JA Iceland, kynnt af Petru Bragadóttur framkvæmdastjóra JA Iceland.

Sérstök verðlaun frá bakhjörlum

Sérstök viðurkenning var veitt fyrir vinsælasta teymið 2025, valið eftir kosningu gesta og áhorfenda:

  • Planda hlaut þau verðlaun fyrir lausn sem auðveldar vinahópum að finna sameiginlegan tíma til að hittast. Coca-Cola á Íslandi veitti teyminu markaðsráðgjöf frá Atla Sigurði Kristjánssyni, framkvæmdastjóra markaðssviðs félagsins, en verðlaunin kynnti Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.

Gróska bauð að lokum upp á þriggja mánaða aðstöðu í Gróðurhúsinu, veitt af Sigurði Ólafssyni. Þau verðlaun hlaut pilot bloks, sem hefur þróað stýrikerfi fyrir gatnalýsingu, byggt á opnum hugbúnaði sem er einfalt og hagkvæmt í rekstri.

Heiðursverðlaun 2025 – Meniga

Að lokum fékk Meniga Heiðursverðlaun Gulleggsins 2025 fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslensks frumkvöðlastarfs. Meniga tók þátt í Gullegginu árið 2009, var meðal topp 10 en hlaut ekki verðlaunasæti. Síðan þá hafa þau náð miklum árangri og fest sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði. Sigríður Mogensen, stjórnarformaður KLAK, veitti viðurkenninguna, og Ásgeir Ö. Ásgeirsson, Viggó Ásgeirsson og Georg Lúðvíksson stofnendur Meniga tóku við henni og ávörpuðu viðstadda.

Framtíðin sannarlega björt fyrir íslenskt frumkvöðlastarf

Gulleggið 2025 undirstrikar mikilvægi frumkvöðlastarfs á Íslandi og sýnir hversu gríðarlega mikilvægur stuðningur bakhjarla og sérfræðinga er við áframhaldandi þróun nýrra hugmynda. Keppnin sýnir að íslenskt frumkvöðlastarf er í blóma og framtíðin full af spennandi tækifærum.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.