Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023 voru í dag veitt hugbúnaðarfyrirtækinu PayAnalytics sem þróað hefur jafnlaunahugbúnað sem gerir launagreiðendum kleift að mæla launabil, loka launabilum og haldalaunabilum lokuðum.
Guðrún Þorgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar PayAnalytics og Garðar Hauksson, stofnandi og tæknistjóri, veittu verðlaununum viðtöku úr hendi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á Nýsköpunarþingi í Grósku í dag.
Guðrún sagði m.a. að þegar hugmyndin hafi kviknað að þróun hugbúnaðar sem einfaldaði notkun gagna og greininga til að loka launabilum hafi það verið mjög fjarlægt að innan nokkurra ára yrði hugbúnaðurinn markaðsleiðandi bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. „Gulleggið 2016,styrkur Tækniþróunarsjóðs 2018, framsækin íslensk fyrirtæki sem komu í viðskipti, fjárfesting Nýsköpunarsjóðs 2020 og fjárfesting Nýsköpunarsjóðs og Eyris Vaxtar árið 2021, voru allt lykiláfangar á vegferð okkar. Við erum stolt af því að bætast í hóp þeirra glæsilegu fyrirtækja sem hafa fengið Nýsköpunarverðlaun Íslands og teljum að árangur PayAnalytics endurspegli mikilvægi stuðnings öflugs íslensks sprotasamfélags.”
Um verðlaunahafa
PayAnalytics var stofnað árið 2018 með það að markmiði að þróa hugbúnað til að auðvelda stórum og smáum fyrirtæki hvar sem er í heiminum að borga sanngjörn laun og vinna þannig gegn mismunun sem byggir á kyni, uppruna, aldri, kynhneigð eða öðrum þáttum sem ekki eiga að hafa áhrif á laun.
PayAnalytics sprettur upp úr sterku jafnréttisumhverfi á Íslandi og er því með fullmótaða vöru nú þegar flest lönd í heiminum er að hefja vinnu við að útrýma launabilum. Hugbúnaðurinn er þegar notaður til að greina laun hjá 40% þeirra sem vinna á Íslandi og hefur náð hraðri útbreiðslu í Evrópu og Norður-Ameríku. PayAnalytics er í notkun í 75 löndum og er notað daglega til að tryggja sanngjörn laun hjá yfir milljón manns hjá nokkrum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum heims.
Markaðsstyrkurfrá Íslandsstofu
Í tengslum við Nýsköpunarverðlaunin veitir Íslandsstofa nýsköpunarfyrirtæki ársins þriggja milljón króna styrk til alþjóðlegrarmarkaðssetningar, í samvinnu við Business Sweden.
Rökstuðningur dómnefndar
Hugbúnaður PayAnalytics leiðir tilmikils samfélagslegs ávinnings. Hann gerir launagreiðendum kleift að takaákvarðanir sem mismuna ekki. Það gerir hann með því að færa flókið viðfangsefni yfir í aðgengilegar niðurstöður. Lausnin er í notkun hjá mörgum stærstufyrirtækjum heims og er einnig notendavæn í meðalstórum og smærri fyrirtækjum,sem er mikilvægt þar sem flest starfsfólk vinnur hjá slíkum fyrirtækjum.
Félagið mun áfram sinna mikilvægu þróunarstarfi umfram jafnlaunahugbúnaðinn þar sem raunverulegu jafnrétti ílaunum verður ekki náð fyrr en öll kyn og allir þjóðfélagshópar hafa sömu möguleika á að komast í hærra borguð störf. Slíkur jöfnuður næst ekki eingöngu með launabreytingum heldur verður að breyta samsetningu þess hóps sem kemst í hærra launuð störf. Þar er PayAnalytics leiðandi í heiminum í dag en hyggst leggja mikinn kraft í að þróa þá lausn áfram.
PayAnalytics er leiðandi í fræðslu og umræðu um launabil. Útgefið fræðsluefni er að finna á sjö tungumálum í formi rafbóka, greina og hlaðvarpa. Með því hreyfir félagið umræðuna í rétta átt og tryggir að fleiri viti að það er hægt að ná niður og koma í veg fyrir launabil.
Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna framúrskarandi þróunarstarfi. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð. Það er mat dómnefndarinnar að PayAnalytics sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2023.
Nýsköpunarverðlaun Íslands
Nýsköpunarverðlaunin Íslands eru veitt af Hugverkastofunni, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins,til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu,sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.