15
.
December
2021

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fjárfestir í Evolytes

Á myndinni frá vinstri, Örn Viðar Skúlason, fjárfestingastjóri Nýsköpunarsjóðs, Guðbjörg Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri námsefnisgerðar hjá Evolytes, Sigurður Gunnar Magnússon leikjahönnuður hjá Evolytes, Íris Eva Gísladóttir, verkefnastjóri vöruþróunar Evolytes, Mathieu Grettir Skúlason, framkvæmdastjóri Evolytes, Adrien Eiríkur Skúlason, viðskiptaþróunarstjóri Evolytes, og Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs.

Menntasprotafélagið Evolytes hefur lokið 70 milljóna króna hlutafjáraukningu, sem leidd var af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.  Evolytes hefur þróað heildstætt námskerfi sem kennir stærðfræði á árangursríkan og skemmtilegan máta í gegnum námsleik fyrir spjaldtölvur, námsbækur og upplýsingakerfi fyrir kennara og foreldra. Vörurnar vinna saman sem ein heild í gegnum gagnadrifin hugbúnað sem les og greinir getu barna í rauntíma og aðlagar námsefnið að getustigi þeirra til að hámarka námsárangur. Hlutafjáraukningin nýtist félaginu við markaðssetningu á Evolytes námskerfinu á erlendum mörkuðum og hraðar þróun kerfisins.

Námskerfi Evolytes er þróað til að bæta árangur barna í stærðfræði. Á Íslandi er staðan sú að 26% barna geta ekki sýnt fram á hæfilega stærðfræðikunnáttu við lok grunnskólagöngu og UNESCO Institute of Statistics áætlar að 617 milljón nemendur á heimsvísu nái ekki lágmarkshæfni í stærðfræði, eða 6 af hverjum 10 börnum í heiminum. Að baki kerfinu liggja áralangar þverfaglegar rannsóknir sem sýna að börn geta með þessum hætti lært hraðar og með árangursríkari hætti en með hefðbundnum kennsluaðferðum. Rannsóknirnar sem námskerfið byggir á eru einstakar, en Evolytes hefur innleitt sex sálfræðikenningar til að tryggja hámörkun námsárangurs barna. Evolytes námsleikurinn er frábrugðinn öðrum námsleikjum þar sem hann stenst samanburð við það skemmtiefni sem börn sækjast í. Þessi blanda af rannsóknar- og skemmtanadrifinni nálgun er ein helsta sérstaða Evolytes námskerfisins.

Námskerfið hefur fengið jákvæð viðbrögð síðan það kom út fyrir einu og hálfu ári síðan. Notendum á einstaklingsmarkaði hefur fjölgað jafnt og þétt auk þess sem skólar hafa sýnt mikinn áhuga. Rúmlega 40 skólar og 2.500 nemendur víðs vegar um Ísland nota nú Evolytes.  Fram undan er markaðssókn í Evrópu og örari þróun á námskerfinu til að styðja við breiðari aldurshóp, fjölbreyttara tækjaúrval og bæta við nýjum skemmtilegum ævintýrum í Evolytes námsleikinn.

Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:

„Nýsköpunarsjóður fagnar þátttöku í að byggja upp gagnlegar lausnir sem stuðla að betri menntun barna til framtíðar, hvort sem er hér á landi eða erlendis. Evolytes tengir saman nám og leik með börnum og kennurum en mikil þörf er á lausnum á þessu sviði. Við teljum að kerfið muni nýtast vel og hlökkum til samstarfsins með öflugu teymi Evolytes.“

Mathieu Grettir Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Evolytes:

„Þessi fjármögnun gefur okkur tækifæri til að umbylta stærðfræðinámi barna og tryggja að þau fái tækifæri til að hámarka árangur sinn í stærðfræði. Með því að gera stærðfræðinám skemmtilegt, gagnadrifið og einstaklingsmiðað höfum við aukið námsárangur og bætt viðhorf nemenda til muna. Á sama tíma veitum við kennurum og foreldrum valdeflandi tæki þar sem þeir eru með rauntímayfirsýn á námsframvindu nemenda. Við höfum notið stuðnings frá Tækniþróunarsjóði til að gera þetta verðuga verkefni að veruleika og það er jafnframt mikil viðurkenning að fá Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins að fjármögnun félagsins. Með þessari fjármögnun getum við náð tæknilegu forskoti og hraðað markaðssókn í Evrópu.“

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.