11
.
March
2024

Íslensk börn búa ekki við sömu tækifæri

Íris E. Gísladóttir, rekstrarstjóri og einn stofnanda Evolytes. Mynd frá VB.is - Ljósmyndari Eyþór Árnason

Íris E. Gísladóttir, rekstrarstjóri og einn stofnenda Evolytes, var nýverið í viðtali i sérblaðinu Iðnþing þar sem hún segir m.a. að mikill skortur sé á fjármagni innan grunnskóla til námsgagnakaupa. Algjör ríkiseinokun sé á markaðnum og lítið breyst í að nálgast heila öld.

Eins og fram kemur í útdrætti greinarinnar í Viðskiptablaðinu þá hefur menntatæknifyrirtækið Evolytes verið í mikilli sókn undanfarin ár en fyrirtækið býður upp á stærðfræðinámskerfi sem sameinar námsbók, námsleik og upplýsingakerfi fyrir kennara þar sem gagnadrifin greining er nýtt til þess að veita börnum einstaklingsmiðað námsefni í rauntíma.

Í dag er kerfið í notkun í nær 80% allra skóla á landinu, auk þess sem kerfið hefur verið tekið upp víða erlendis.

„Það er svona okkar markmið að breyta því hvernig börn læra, það er að segja að ýta undir þennan náttúrulega áhugahvata og reyna að viðhalda honum lengur,“ segir Íris í viðtalinu en hún stofnaði fyrirtækið ásamt Mathieu G. Skúlasyni árið 2017.

„Við fengum ótrúlega góð við brögð frá skólakerfinu sem kom okkur á óvart. Það var búið að ráðleggja okkur gegn því að fara inn í skólakerfið þar sem skólarnir hafa nánast ekkert fjármagn til námsgagnakaupa utan þess sem ríkið veitir. Það má í rauninni segja að það er bara verið að grafa eftir fjármagni því kennarar vilja svo ólmir fá svona tól því að það virkar mjög vel inn í kennslustofuna.“

Mikill skortur sé þó á fjármagni innan skólanna og að sögn Írisar má segja að algjör ríkisrekin einokun ríki á námsgagnamarkaði, sem eigi rætur sínar að rekja til ársins 1936. Menntamálastofnun sér samkvæmt lögum um að sjá öllum grunnskólanemendum fyrir námsgögnum og fara til þess verkefnis 380 milljónir á ári. Þar fyrir utan fái sveitarfélögin, sem sjá um almennan rekstur skóla, aðeins 1.500 krónur á nemanda í gegnum Námsgagnasjóð.

Nánar er rætt við Írisi í sérblaðinu Iðnþing. Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild hér.

Nýsköpunarsjóður kom fyrst að Evolytes árið 2021.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.