28
.
April
2025

Edda Lára Lúðvígsdóttir og Valdimar Halldórsson ráðin sem fjárfestingastjórar Nýsköpunarsjóðsins Kríu

Valdimar Halldrósson og Edda Lára Lúðvígsdóttir

Nýsköpunarsjóðurinn Kría (NSK) tók til starfa í byrjun árs 2025 við samruna Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu sprota- og  nýsköpunarsjóðs. Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók við eignum og skuldbindingum sjóðanna og að lokinni stefnumótunarvinnu sem unnin var með stjórn sjóðsins og Expectus er starfsemin nú komin af stað. Hinum nýja sjóði er ætlað mikilvægt hlutverk í íslensku atvinnulífi þ.e. að fjárfesta í sjóðum sem sérhæfa sig í fjármögnun á fyrstu stigum fyrirtækja sem og beint í sprotafyrirtækjum samkvæmt fjárfestingastefnu sem stjórn sjóðsins setur hverju sinni í takti við stefnu stjórnvalda. Eignasafn sjóðsins samanstendur af eignarhlutum í fjórum innlendum vísisjóðum ásamt eignarhlutum og lánasafni í yfir 30 sprotafyrirtækjum. Sprotafyrirtækin eru ólík og í mörgum mismunandi atvinnugreinum og hafa, líkt og mörg önnur sprotafyrirtæki sem fyrirrennarar NSK hafa fjárfest í, burði til að geta stækkað, þroskast og stutt við hagvöxt á Íslandi til framtíðar.

Sjóðurinn hefur ráðið til sín tvo nýja fjárfestingastjóra sem taka annars vegar við sjóðafjárfestingum og hins vegar við beinum fjárfestingum og eftirfylgni með eignasafni. Störfin voru auglýst í febrúar sl. og bárust um þau alls 44 umsóknir.

Fjárfestingastjóri sjóðafjárfestinga

Edda Lára Lúðvígsdóttir er með 16 ára víðtæka starfsreynslu á fjármálamörkuðum í sjóðstýringu, fjárfestingabankastarfsemi og fjárfestatengslum. Edda Lára starfaði hjá Coca-Cola á Íslandi sem leiðtogi í mannauðsmálum en þar áður sem forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Össuri, sjóðstjóri hjá Gamma Capital Management, verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og lánastjóri á fyrirtækjasviði bankans. Edda Lára situr í stjórn Driftar EA, miðstöðvar frumkvöðla og nýsköpunar. Hún sat áður í stjórnum Dansk Investor Relations Forening í Danmörku, Ölmu íbúðafélags og Smárabyggðar sem er eigandi fasteignaverkefnisins 201 Smári.

Edda Lára er með B.Sc. í viðskiptafræði og M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá HR og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

 

Fjárfestingastjóri beinna fjárfestinga og eftirfylgni með eignasafni

Valdimar Halldórsson er með um 20 ára starfsreynslu bæði á fjármálamörkuðum og rekstri.

Valdimar hefur verið sjálfstætt starfandi sem ráðgjafi og stjórnarmaður undanfarin fjögur ár og sat m.a. í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og í nokkrum sprotafyrirtækjum á vegum sjóðsins. Hann hefur góða reynslu af stjórnarsetu m.a. hjá Stapa líeyrissjóði, Orkuveitu Húsavíkur, ISAVIA og var stjórnarformaður Fríhafnarinnar. Valdimar starfaði sem framkvæmdastjóri Norðursiglingar hf., og Hvalasafnsins á Húsavík, í fyrirtækjaráðgjöf HF Verðbréfa og Marko partners, sem aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra, í greiningardeild Íslandsbanka og hjá Þjóðhagsstofnun.

Valdimar er með B.A. gráðu í hagfræði frá HÍ og University of Oslo í Noregi og M.Sc. í viðskiptafræði frá HÍ.

„Það er mikill fengur af því að fá svo reynslumikið fólk til starfa, ekki einungis fyrir okkur heldur allt nýsköpunarsamfélagið. Þau hafa bæði umfangsmikla reynslu af fjárfestingum og því að starfa á síkvikum fjármálamarkaði auk þess að hafa komið að fyrirtækjarekstri. Ég hlakka mikið til samstarfsins og þess að Nýsköpunarsjóðurinn Kría taki nú flugið,“ segir Hrönn Greipsdóttir forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu.

___________________________________________________________________________

Nýsköpunarsjóðurinn Kría er fjárfestingarsjóður sem tekur virkan þátt í þróun og vexti íslensks atvinnulífs með því að fjárfesta í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem og sjóðum sem sérhæfa sig í fjármgönun á fyrstu stigum fyrirtækja.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.