19
.
September
2023

Atmonia hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku

Mynd frá Samorku: Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups og talsmaður dómnefndar og Guðbjörg Rist framkvæmdastjóri Atmonia við afhendingu verðlaunanna.

Atmonia hlaut Nýsköpunarverðlaun Samorku 2023 sem afhent voru á opnum fundi í Kaldalóni í Hörpu þann 18. september. Atmonia var stofnað árið 2016 af Agli Skúlasyni, Helgu Dögg Flosadóttur og Arnari Sveinbjörnssyni með það að markmiði að þróa róttæka og sjálfbæra tækni til að nýta efnahvata við rafefnafræðilega framleiðslu á ammóníaki án losunar gróðurhúsalofttegunda. Nýsköpunarsjóður kom fyrst að fjármögnun Atmonia árið 2020.

Atmonía þróar sjálfbært ferli fyrir ammoníakframleiðslu og í tilkynningu frá Samorku segir að ammoníak sé mikilvægt fyrir áburðarframleiðslu en áburður tryggir matvælaöryggi um allan heim. Hins vegar sé sú aðferð sem notuð sé til framleiðslunnar mjög mengandi og valdi 1-2% koltvísýringsútblæstri af mannavöldum í heiminum. Þessi nýja tækni hafi möguleika á að umbylta því. Þá sé einnig hægt að nýta ammoníak sem rafeldsneyti á stærri farartæki. Tækni Atmonia er einkaleyfavarin sem ber vott um nýnæmi hennar.

Við mat dómnefndar var horft til ýmissa þátta eins og nýnæmis, samsetningu teymis, verðmætis fyrir Ísland, markaðstækifæra, verðmætis m.t.t. loftslagsmála og nýtingu orku, vatns og hliðarstrauma fyrir verkefnið. Dómnefndin var einróma í mati sínu og telur að framgangur verkefnisins geti haft afar jákvæð og þýðingarmikil áhrif.

Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri Atmonia, tók við verðlaununum fyrir hönd Atmonia.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.