15
.
June
2023

Ásta Dís nýr stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

Ásta Dís - Mynd: Silla Páls.

Ásta Dís Óladóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Hún tekur við af Sigurði Hannessyni sem hefur gegnt formennsku síðan árið 2018.

Ásta Dís Óladóttir er dósent í stjórnun og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsgráðu frá Copenhagen Business School árið 2010 og hefur á undanförnum árum stýrt hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum, auk þess að sinna kennslu við háskóla bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur setið í fjölmörgum stjórnum, ráðum og nefndum í gegnum árin. Ásta Dís er formaður Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands,Vísindasjóðs Háskólans á Akureyri og Jafnvægisvogarinnar.  Hún situr í stjórn Samherja og tengdra félaga og í eftirlitsnefnd með framkvæmd lána með ríkisábyrgð vegna Covid 19.

,,Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er fjárfestingarsjóður sem á sér sögu sem spannar aldarfjórðung. Á þeim tíma hefur hann tekið þátt í þróun og vexti atvinnulífsins, með því að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Ég er því full tilhlökkunar að starfa með sjóðnum að nýju en ég hef sinnt ýmsum stjórnarsetum fyrir hönd sjóðsins í gegnum árin, auk þess að vinna náið með stjórnendum hans í gegnum stjórnarsetu mína í Frumtaki og fjárfestingaráði þess á sínum tíma. Sjóðurinn hefur nýverið farið í gegnum stefnumörkun og fengið nýja ásýnd, auk þess sem hann er að fjárfesta í allra minnstu sprotunum á markaðnum. Hann á því ekki í samkeppni við aðra sjóði um fjárfestingu heldur brúar bilið þar til aðrir sjóðir eru líklegir til að fjárfesta. Það er alveg ljóst í dag að það er mikil þörf fyrir slíkar fjárfestingar á markaðnum og spennandi tímar framundan, því það má með sanni segja að nýsköp­un sé undanfari allra þeirra tækni­breyt­inga sem við höf­um séð og upp­lifað á síðustu árum og áratugum og við erum bara rétt að byrja,“ segir Ásta Dís.

Aðrir stjórnarmenn eru Sigríður Mogensen sem er nú varaformaðurstjórnar, Ragnhildur Jónsdóttir, Róbert Farestveit og Valdimar Halldórsson.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.