10
.
July
2024

12 milljarðar í nýjum sjóð Frumtaks

Teymið á bak við Frumtak Ventures: Fróði Steingrímsson, Rakel Sigurðardóttir, Svana Gunnarsdóttir, Ásthildur Otharsdóttir, Andri Heiðar Kristinsson og Brynja Eyjólfsdóttir.

Frumtak Ventures hefur nú lokið 12 milljarða fjármögnun á sjóðnum en meðal fjárfesta í sjóðnum eru stofnanafjárfestar, lífeyrissjóðir, Kría sprota- og nýsköpunarsjóður auk meðeigenda Frumtak Ventures.

Undirbúningur hófst í byrjun árs og stóð upprunalega til að safna áskriftum fyrir 10-12 milljarða. Umframeftirspurn var eftir áskriftum en ákveðið var þó að hafa sjóðinn ekki stærri en 12 milljarða.

Nýsköpunarsjóður óskar Frumtaki innilega til hamingju.

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.